Rokkveisla í kvöld

rock-n-rollNú eru vinir mínir í Brján að frumsýna í kvöld í Egilsbúð. Ég ætla að mæta ásamt gamla genginu sem oft hefur borið uppi þessar sýningar. Nú eru kynslóðaskipti og sýnir það styrk okkar hér í rokkinu. Hér er svo mikið af hljóðfæraleikurum og söngvurum að það hálfa væri nóg... fyrir stærra þorp:) Annars er aldrei  of mikið af tónlist, hún er svo yndisleg... oftast.

Ég birti svo lærða gagnrýni á sýninguna eftir helgi þar sem ég kem til með að rakka alla í mig sem standa sig ekki. Því á ég von á litlu rakki, en miklu rokki.

Gangi ykkur vel, kæru vinir!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég væri sko til í að vera heima á Norðfirði í kvöld...Góða skemmtun

Maggý Jónsdóttir (IP-tala skráð) 27.10.2007 kl. 21:29

2 Smámynd: Gísli Gíslason

Það er frábært og í raun einstakt hvað það er mikil nýliðun af tónlistarfólki í Neskaupstað.  Ég er viss um að skemmtunin hafi verið frábær eins og öll hin.

Gísli Gíslason, 28.10.2007 kl. 11:21

3 identicon

Showið var bara snilld fannst mér:)

Jónína Harpa (IP-tala skráð) 29.10.2007 kl. 18:31

4 Smámynd: Guðmundur Rafnkell Gíslason

Sammála Jónína. Þetta var skemmtileg sýning. Takk fyrir mig.

Guðmundur Rafnkell Gíslason, 29.10.2007 kl. 21:00

5 Smámynd: Gísli Bergsveinn Ívarsson

Hæ frændi

Ég verð að fara að koma austur og bera alla dýrðina augum.

Það eru komin rúmlega 3 ár síðan ég kom síðast. (þá varð ég reyndar veðurtepptur)

Gísli Bergsveinn Ívarsson, 30.10.2007 kl. 23:59

6 Smámynd: Guðmundur Rafnkell Gíslason

Vertu velkominn frændi minn hvenær sem er. Ég skal lyfta glasi/glösum með þér ef þú kemur austur.

Guðmundur Rafnkell Gíslason, 1.11.2007 kl. 20:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband