Trúbadorahátíð Íslands 2007

Nú í byrjun október áforma ég að halda í 6. skipti Trúbadorahátíð Íslands. Um er að ræða 3-4 tónleika. Í fyrra var hátíðin með breyttu sniði og heppnaðist mjög vel. Fram komu 14 trúbadorar þar af 7 að austan.  Mjög góð mæting var á tónleikana  í Mjóafirði og á Norðfirði en mæting á Stöðvarfirði hefði mátt vera betri. Nú hugsa ég að tóleikarnir verði á Norðfirði, Mjóafirði og ....? Nú er ég að byrja að skipuleggja þessa hátíð og bendi þeim trúbadorum sem hafa áhuga að senda mér póst á bgbros@simnet.is Svo langar mig að spyrja ykkur. Hverja viljið þið sjá þetta árið?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég myndi vilja sjá Leo Gillispie.Hann var flottur þarna í stúkunni um daginn.

Hertoginn á Bajrti NK (IP-tala skráð) 10.9.2007 kl. 12:57

2 identicon

Ég myndi vilja sjá Dóra Braga með slide gítarinn og Bjögga Gísla kominn tími á blús þarna.

Gummi (IP-tala skráð) 10.9.2007 kl. 14:52

3 identicon

Ég þekki frábæran trúbador sem spilaði mikið á Láka Aðalsteinn Leó Aðalsteinsson endilega fá hann að vera með

allileo@hotmail.com

Gellan (IP-tala skráð) 10.9.2007 kl. 19:19

4 identicon

Ég myndi vilja sjá bubba og megas taka saman dúett.

Hilmar (IP-tala skráð) 15.9.2007 kl. 19:47

5 Smámynd: Guðmundur Rafnkell Gíslason

Hilmar! Ég held að það gæti verið erfitt að fá þá fornu vini Bubba og Megas til að taka lagið. Ég reyndi það fyrir nokkrum árum og það féll í grýttan jarðveg.

Guðmundur Rafnkell Gíslason, 17.9.2007 kl. 10:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband