Ég hvísla yfir hafið góða nótt

Þetta snilldarlag e. Gylfa Ægisson söng ég í fyrsta skipti á þorrablóti sveitamanna um síðustu helgi. Ekki það að ég vilji misskilja textann en þessi fyrsta vísa er fyndin. Ætli Gylfi hafi samið þetta í koju? 

Er napur vindur nístir kalda kinn
Og nóttin breiðist yfir bátinn minn
Ég kemst ei hjá að hugsa vina heim til þín
Og hugsunin, hún örvar handtök mín.

Svo er verið að æfa annál og lög fyrir kommablótið sem verður næsta laugardag. Það verður gaman!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: SigrúnSveitó

Jamm, ég hugsa amk heim. Það er alltaf eitthvað...jólin, áramótin...þorrinn með öllum sínum blótum...en ég KEM um páskana!!!  Jiiii, hvað ég hlakka til að sjá fallega fjörðinn "minn". 

Maila á þig þegar nær dregur til að vita hvenær þú hefur tíma fyrir smá hitting með litlum aðdáendum ;)

Knús... 

SigrúnSveitó, 30.1.2008 kl. 19:53

2 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

he he he

Einar Bragi Bragason., 30.1.2008 kl. 22:47

3 Smámynd: Bjarney Hallgrímsdóttir

Góður

Bjarney Hallgrímsdóttir, 31.1.2008 kl. 00:43

4 Smámynd: Guðmundur Rafnkell Gíslason

Já, sjáumst Sigrún. Heima er best!

Guðmundur Rafnkell Gíslason, 31.1.2008 kl. 18:09

5 identicon

Sæll.

Er alveg klár á því að hann hefur samið þetta í koju eins og þú segir. Það hefur lengi verið sagt um Gylfa að hann segi það sem hugsar.

Sigurjón E (IP-tala skráð) 1.2.2008 kl. 13:33

6 identicon

Gylfi er bara við kojuna kenndur & kenndur !

Bubbi vann í "fiski"

Mr.G  naut sín í kojunni ! veit ej hvort neðri eða efri ?

Rúnar veit allt um sveiflur G .  Kannski ?

Láki (IP-tala skráð) 1.2.2008 kl. 22:13

7 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Sjúddararírei

Gunnar Th. Gunnarsson, 2.2.2008 kl. 21:47

8 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

var að hlusta á lagið þitt ÁSTRÓS mikið er það fallegt

Guðrún Jóhannesdóttir, 8.2.2008 kl. 14:00

9 Smámynd: Guðmundur Rafnkell Gíslason

Takk fyrir það Guðrún, þetta er samið til dóttur minnar sem heitir Eyrún. Hún er ástrósin mín.

Guðmundur Rafnkell Gíslason, 8.2.2008 kl. 20:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband