Allt hvítt, ekkert bleikt og blátt!

Ég slapp yfir Oddsskarð í morgun í snarvitlausu veðri. Var reyndar á jeppanum þar sem hann var bókaður í þjónustu hjá Helga vini mínum í Heklu á Reyðarfirði. Einn bíll var út af veginum sunnan ganganna rétt hjá skíðaskálanum. Ég sá grilla í afturljósin og svo blikkaði ljósið inn í honum. Þegar ég ætlaði að fara út í hríðina að athuga með fólkið hringdi síminn minn. Final Countdown hljómaði frá símanum mínum:

"Gummi ertu á skarðinu?" var spurt.

"já, ég er hérna í snarvitlaus veðri" svaraði ég.

"Ég er hérna í bílnum sem er út af, þú getur haldið áfram, það er í lagi með mig og björgunarsveitin á leiðinni."

Sem betur fer varð ekki slys úr þessu og trommarinn og álrisinn er kominn í vinnu, ekki alvarlega slasaður og Subaruinn hans óskemmdur.

Svo er ég bókaður í spilerí í Svæðisútvarpinu í dag en það fer væntanlega eftir veðri og vindum hvort af því verður. Svo á ég að syngja með Hnökkunum á dansleik á Fáskrúðsfirði á morgun, laugardagskvöld. Við skulum vona að það viðri til ferðalaga:)

Nú bíð ég og vona að það verði fært svo ég komist heim í kvöld en síðustu fréttir herma að snjóruðningstækið hafi lent út af líka. Á skarðinu er vitlaust veður þessa stundina.

Allt hvítt eins og Vinstri grænir vilja hafa það á fæðingardeildinni.

Ætlar Jón Björn ekki að koma fram með svona skemmtilega fyrirspurn á Alþingi?


mbl.is Ófærir fjallvegir austanlands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: SigrúnSveitó

Gott þú komst klakklaust yfir Skarð.  Hér er líka leiðindaveður, en ekki myndi ég kalla það eitthvað crazy.  En haglélin meiddu nú samt litla minn í kinnarnar í morgun á leið í leikskólann...hann þekkir ekki svona veður, unginn litli. 

Nobbara-kveðjur af Skaganum... 

SigrúnSveitó, 30.11.2007 kl. 13:53

2 identicon

Iss...smá vindur,hvað er eiginlega að ykkur?Þú tekur bara jamm með Stelluboy á Reyðó,ekki hægt að láta sér leiðast með þeim fjörkálfi!!!Þið ættu kannski að stofna band,Big Band Mama Stelluboy.

Hertoginn á Bjarti NK (IP-tala skráð) 30.11.2007 kl. 18:29

3 Smámynd: Guðmundur Rafnkell Gíslason

Nei Gunnar minn! Ég komst heim á mínum fjallabíl. Reyndar var ófært en ég fór í kjölfar rútu og slapp í gegn. Mætti snjóplógnum á miðju skarði en samt var næstum ófært í blóðbrekkunum. Sannarlega ekkert ferðaveður.

Guðmundur Rafnkell Gíslason, 30.11.2007 kl. 20:49

4 identicon

isspiss..........ég hefði komist þetta á Bensanum,leikið mér að því léttilega!!!

Hertoginn á Bjarti NK (IP-tala skráð) 1.12.2007 kl. 00:07

5 Smámynd: Eyþór Árnason

Gott þú er kominn heim. Hér í Vesturbænum er allt marautt,en fjandans strekkingur. Kveðja.

Eyþór Árnason, 1.12.2007 kl. 00:41

6 identicon

Það er ekkert að veðrinu hér í borginni,er sjálfur staddur í vesturbænun,nánar til tekið á Öldugötunni.Þið eru bara kuldaskræfur sem búa hér á þessu horni landsins,hehehehe.....smávindur og þá fara allir að væla eða þá smá snjór hér og þá fer allt til fjandans,huh.....grenjuskjóður!!!

Hertoginn á Bjarti NK (IP-tala skráð) 1.12.2007 kl. 02:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband