Kyrrlátt kvöld
25.11.2008 | 12:43
Kyrrlátt kvöldÞað er kyrrlátt kvöld við fjörðinn Meðan þung vaka fjöll yfir hafi, Því allir fóru suður í haust Dauðadóm sinn kvað hann upp og glotti
Texti: Þorlákur Kristinsson |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Mælanleg markmið, takk fyrir!
10.11.2008 | 12:45
Ekki eitthvað orðagjálfur eins og: "stefnt er að..." "Leitast skal við..." og svo frv.
Eins og staðan er í dag þarf að setja skýr markmið og móta framtíðarsýn. Allir flokkar pexa um hvað fór úrskeiðis og auðvitað þarf að skoða það. Almenningur kallar á endurnýjun í öllum helstu valdastöðum.
Það sem skortir er samt FRAMTÍÐARSÝN.
![]() |
Vilja nýjan stjórnarsáttmála |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Heyrst hefur...
30.10.2008 | 17:00
![]() |
Yfir 20 manns sagt upp hjá 365 og laun lækkuð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Stórar stelpur
26.10.2008 | 15:37
Tíminn líður hratt, orti Magnús Eiríksson fyrir rúmlega 20 árum. Það er hverju orði sannara.
Mér finnst gaman að eldast og langar ekki að verða 18 ára aftur. Dætur mínar stækka með hverjum deginum, Eyrún að fermast í vor og María á 8. ári. Eyrún Björg er orðin hærri en mamma sín, jahérnahér!
Það var matarklúbbur í gærkvöldi hjá okkur hjónum, mjög gott kvöld. Við strákarnir uppgötvuðum ýmislegt í okkar spjalli. T.d. við kunnum ekkert lag með Mugison eða Sigurrós. Þó okkur væri stillt upp fyrir framan byssukjaft og ættum lífið að leysa þa mundum við ekkert. Jón Hilmar gat þó raulað einhver gítarfrasa sem hann sagði með Mugison. Sæll! Fáfræði okkar eða........?
Svo komst ég að því að Elísa með Súellen er 20 ára þessa dagana. Til hamingju með það strákar!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Ekkikreppublogg
22.10.2008 | 12:57
Ég er jafn heilbrigður og ég var
Konan mín er enn konan mín og ég elska hana
Stelpurnar mínar eru heilbrigðar og ég elska þær
Fjölskyldan mín öll er á sínum stað og allir hressir
Vinir mínir eru allir jafn hressir og áður og enn vinir mínir
Húsið mitt er enn á sínum stað
Ég er með vinnu
Sólin kemur enn upp.
Hvað er þá að?
Ekkert sem skiptir stóru máli
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Svo fáum við okkur Lödu... eða Volgu!
7.10.2008 | 16:01
Ef þetta verður raunin og þeir einu sem hlusta á neyðarkall Davíðs Oddssonar eru Rússar, þá er það í raun bráðfyndið. Hvað sagði bandaríski seðlabankinn við Mr. Oddsson? Hefur því nokkuð verið svarað?
Ástandið er grafalvarlegt en þetta er bara fyndið!
Svo förum við aftur að flytja inn ódýrar Lödur,
Aeroflot hefur áætlunarflug til landsins
og Litla Moskva verður höfuðborg Íslands.
Ekki amaleg framtíðarsýn það
![]() |
Seðlabankastjóri: Viðræður standa yfir við Rússa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Flugið
3.10.2008 | 10:49
Hvernig stendur á því að það eru 7 verðflokkar í innanlandsflugi þegar 3 ódýrustu eru aldrei í boði?
Brottför | Koma | Flugtími | Flugnr | Flugvél | Forgangur skilmálar | Ferðasæti skilmálar | Sparsæti skilmálar | Bónussæti skilmálar | Netfargjald skilmálar | Nettilboð skilmálar | Sértilboð skilmálar |
09:25 | 10:25 | 1:00 | NY-327 | F50 | 14.640 kr. | 12.630 kr. | 10.960 kr. | Ekkert laust | Ekkert laust | Ekkert laust | Ekkert laust |
12:25 | 13:25 | 1:00 | NY-333 | F50 | 14.640 kr. | 12.630 kr. | 10.960 kr. | Ekkert laust | Ekkert laust | Ekkert laust | Ekkert laust |
15:25 | 16:25 | 1:00 | NY-337 | F50 | 14.640 kr. | 12.630 kr. | Ekkert laust | Ekkert laust | Ekkert laust | Ekkert laust | Ekkert laust |
17:25 | 18:25 | 1:00 | NY-347 | F50 | 14.640 kr. | 12.630 kr. | Ekkert laust | Ekkert laust | Ekkert laust | Ekkert laust | Ekkert laust |
20:25 | 21:25 | 1:00 | NY-357 | F50 | 14.640 kr. | 12.630 kr. | 10.960 kr. | 9.940 kr. | Ekkert laust | Ekkert laust | Ekkert laust |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Bylgjan og Rás 2
1.10.2008 | 09:56
Þessar rásir eru oft bornar saman.
Flestir vita mína skoðun. Ég treysti ekki einkarekinni útvarpsstöð fyrir því að sinna íslenskri tónlist. Ekki ef það á að vera 365 stöð. Því miður.
![]() |
Ari Edwald: Stjórnvöld gegn einkafjölmiðlum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Meira um Samgöng
1.10.2008 | 09:34
Ég bara held, og lái mér hver sem vill, að Seyðisfirði væri betur borgið með tengingu við Norðfjörð (og þar sem Esk, Rey og...) Vegna þess:
-Göng frá Seyðisfirði til Mjóafjarðar og til Norðfjarðar eru styttri en göng undir Fjarðarheiði. Þar munar a.m.k. 2 kílómetrum
-Seyðisfjörður og Norðfjörður verða ekki lengur endastöðvar-Atvinnusvæði fjarðanna er mun stærra og fjölbreyttara en svæðið á Héraði. Þar eru meðallaun líka hærri.
-Hugsanlega er önnur tenging á milli Héraðs og fjarða hagstæðari fjöldanum en göng undir Fjarðarheiði
-Ferðamenn hafa mun meiri fjölbreytni og áhugaverðara svæði að skoða á fjörðum en á Héraði (umdeilanlegt, en mín skoðun)-Ferðamenn sem koma með Norrænu hafa fleiri leiðir til og frá ferju. Hver segir að að allir kjósi að allir kjósa að fara beint í Egilsstaði ef þeir hafa val?-Verslun og þjónustu væri betur borgið á Seyðisfirði því Seyðisfjörður væri ekki endastöð.
-Samvinna í sjávarútvegi yrði auðveldari og gæfi möguleika á uppbyggingu á Seyðisfirði. Útflutningur á sjávarafurðu með ferjunni yrði samkeppnishæfari. Þar með siglingar allan ársins hring
-Menningarlega eiga Seyðfirðingar samleið með Fjarðamönnum. Það er staðreynd.
Um allt þetta má þrefa en ég ætla ekki að láta saka mig um að halda kjafti þegar ég hef skoðun. Það eru nógu margir í þeim pakka að sýna svo mikla tillitssemi að stór mál eru ekki rædd. Þetta með Bónus var grín en öllu gamni fylgir einhver alvara. Ég ætlaði ekki að móðga neinn. En það er móðgun að saka mig um vanþekkingu á aðstöðu Seyðfirðinga. Halló! Ég bý á Norðfirði!Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Samgöng eða Bónus?
25.9.2008 | 11:13
Sælt veri fólkið!
Eins og menn vita hef ég stutt Samgöng og lét meira að segja hafa eftir mér að það mættir fresta Norðfjarðargöngum ef það væri tryggt að við fengjum göng alla leið. Esk-Nesk-Mjóifj-Seyðis og svo tengingu á hagkvæmum stað upp í Hérað. Ekki endilega undir Fjarðarheiði.
Seyðfirðingar hafa verið manna harðastir og að þeirra frumkvæði unnu bæjarstjórar okkar Fjarðabyggðar, Héraðs og Seyðisfjarðar saman að þessari hugmynd. Með Samgöngum tengdust Seyðfirðingar okkur, fjórðungssjúkrahúsi, verkmenntaskóla, álverinu og miðsvæði Austurlands þar sem mikil uppbygging er og vantar vinnuafl. Ég hlakkaði til að komast til Seyðisfjarðar (jafnvel sameinast þeim) Þeir eru nefnilega glettilega líkir Norðfirðingum, sem tónlistar- og menningarlíf sannar. Með samgöngum gæfist okkur kostur á að njóta alls þess besta er Seyðisfjörður býður upp á, svo við tölum ekki um Mjóafjörð, perluna okkar.
Seyðisfjörður er endastöð, Neskaupstaður líka. Samgöng hefðu breytt því.
Nú hefur bæjarstjórn Seyðisfjarðar ályktað og ég verð að segja að ég er súr.
Bæjarstjórn Seyðisfjarðar samþykkir að leita allra leiða til að gerð verði jarðgöng á milli Seyðisfjarðar og Héraðs.
Ég man ekki betur en að ég og mínir félagar höfum verið sakaðir um að eyðileggja samstöðuna um Samgöng. Margur heldur mig sig.
Af hverju álykta Seyðfirðingar ekki um göng til Mjóafjarðar og Neskaupstaðar? (Norðfjarðargöng eru jú staðreynd) og þau 2 göng eru styttri en göng til Héraðs frá Seyðisfirði (Ef ég man rétt)?
Seyðfirðingum liggur kannski á í flug?
Tekið skal fram að þessi grein endurspeglar mína skoðun, ekki endilega bæjarstjórn Fjarðabyggðar. GRG
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)