Svo fáum við okkur Lödu... eða Volgu!

Ef þetta verður raunin og þeir einu sem hlusta á neyðarkall Davíðs Oddssonar eru Rússar, þá er það í raun bráðfyndið. Hvað sagði bandaríski seðlabankinn við Mr. Oddsson? Hefur því nokkuð verið svarað?

Ástandið er grafalvarlegt en þetta er bara fyndið!

Svo förum við aftur að flytja inn ódýrar Lödur,

Aeroflot hefur áætlunarflug til landsins

og Litla Moskva verður höfuðborg Íslands.

Ekki amaleg framtíðarsýn það LoL


mbl.is Seðlabankastjóri: Viðræður standa yfir við Rússa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

heheheh   þú meinar 740 Paradís

Guðjón Helgi (IP-tala skráð) 7.10.2008 kl. 19:51

2 identicon

Sæll Gummi mig langaði nú bara að forvitnast hvað væri að frétta af trúbadora hátíðini?

Hilmar Garðars (IP-tala skráð) 7.10.2008 kl. 23:15

3 Smámynd: Guðmundur Rafnkell Gíslason

Sæll Hilmar!

Ekkert að frétta af henni. Ég ákvað í fyrra þegar að mér var ómaklega vegið vegna styrkjamála að standa ekki lengur í því að halda menningarviðburði hér. Allavega hvíla mig og leyfa öðrum að sanna sig. Þess vegna er ekki Trúabadorahátíð í ár. Ég hef þó verið jákvæður fyrir því að halda hana annars staðar ef áhugi og framkvæmdavilji er fyrir hendi. Þú hefur bara samband ef þú færð hugmynd. Hvað er að frétta af plötunni þinni?

Guðmundur Rafnkell Gíslason, 8.10.2008 kl. 09:12

4 identicon

Sæll Guðmundur

þÚ

Stefán (IP-tala skráð) 8.10.2008 kl. 12:35

5 identicon

Afaskið....

Þú ætlar seint að jafan þig á þv´´i að þesi drengur hafti ekki viljað styrkja þig.... ha? er ekki komin tími til að jafna sig á því?

Stefán (IP-tala skráð) 8.10.2008 kl. 12:38

6 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Ætli Rússarnir muni ekki hverjir voru vinir þeirra í den, seldu þeim málningu og allskonar dót og keyptu af þeim olíu og annað smálegt í staðinn meðan enginn annar vildi versla við þá.

Ingvar Valgeirsson, 8.10.2008 kl. 13:48

7 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Flottur. Alveg nauðsynlegt að hafa húmor.

Jón Halldór Guðmundsson, 9.10.2008 kl. 01:11

8 identicon

sæll gummi það er fínt að frétta af plötuni.við tókum sönginn upp fyrir 3 vikum og verður hún tilbúin seint í þessum mánuði.Ég ættla hinsvegar ekki að gefa hana út fyrr en í mars eða apríl.

Hilmar Garðars (IP-tala skráð) 9.10.2008 kl. 10:30

9 Smámynd: María Katrín Jónsdóttir Ármann

Lödur eru TÖFF Lifi mig líka vel inn í kreppuna þegar ég ek um götur bæjarins á Lödu Sport

María Katrín Jónsdóttir Ármann, 15.10.2008 kl. 19:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband