Kyrrlátt kvöld

Kyrrlátt kvöld 

Það er kyrrlátt kvöld við fjörðinn
ryðgað liggur bárujárn við veginn.
Máfurinn, múkkinn og vargurinn
hvergi finna innyflin.

Meðan þung vaka fjöll yfir hafi,
í þögn stendur verksmiðjan ein
svo langt frá hafi,
ekkert okkar snýr aftur heim.

Því allir fóru suður í haust
í kjölfar hins drottnandi herra.
Bátar fúna rotna við naust
það nam vart með öðru en að hnerra.

Dauðadóm sinn kvað hann upp og glotti
þorpsbúa hann hafði að háði og spotti
síldin farin, fer ég líka
suður á bankana vald.

 

Texti: Þorlákur Kristinsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Guðmundur

Ég get nú ekki annað en velt því fyrir mér, í ljósi skilaboða þinna hér til hægri um afritun efnis af þessari síðu, hvort þú hafi fengið leyfi hjá Tolla til að birta textann hans hér á síðunni þinni.

Esther Ösp Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 25.11.2008 kl. 14:00

2 Smámynd: Guðmundur Rafnkell Gíslason

Almennt séð er það á gráu svæði að birta dægurlagatexta á bloggsíðum, sérstaklega ef höfunda er ekki getið. FTT (félag tónskálda og textahöfunda) hefur fjallað um þessi mál en ekkert leiðbeinandi verið gefið út að ég held. Fjölmargar textasíður eru á netinu og sjálfsagt verður þetta skoðað í framtíðinni.

Já, ég er með góðfúslegt leyfi frá Tolla í gegnum FTT. Mér finnst þetta ákaflega skemmtilegt lag og umhugsunarverður texti, ekki nánar um það.

Ég ákvað að verja höfundarrétt minn á þessum hugrenningum sem birtast á þessari síðu þegar ónefnt blað birti bloggfærslu mína í heild sinni. Mér finnst lágmark að biðja um leyfi fyrir svoleiðis. Því áskil ég mér minn rétt, rétt eins og ég geri þegar ég gef út lag eða texta.

Það eru líka til snillingar sem klippa út úr færslum og birta valda kafla á sínum síðum og snyrta sannleikann svo vel að hann verður óþekkjanlegur. Eins og þungarokkari sem fengið hefur snoðklippingu.

Guðmundur Rafnkell Gíslason, 25.11.2008 kl. 15:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband