Færsluflokkur: Bloggar
Er bloggið í lagi?
21.6.2012 | 10:21
Ég ákvað nú bara að athuga hvort bloggsíðan sé enn í lagi. Ég mundi lykilorðið og allt virðist eins og þegar ég kom hingað síðast. Kannski maður skrifi eitthvað á næstunni, er með ýmislegt sem þarf að gera upp og á ekki heima á Facebook. Kannski...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þorrablót
21.1.2011 | 09:26
Til hamingju með daginn kæru bændur!
Bóndadagur í dag og engin ennþá óskað mér til hamingju. Ekki er ég bóndi í eiginlegum skilningi en húsbóndi er ég á mínu heimili, jú svei!
Ég hlakka mikið til að fara á þorrablót sveitamanna í Norðfjarðarsveit, sem haldið er í Egilsbúð eins og undanfarin ár. Jón Björn vinur minn og forseti og hans eiginkona Hildur Vala bjóða okkur Gunnu með sér - takk!
Jón Björn skrifar og flytur annálinn af sinni alkunnu snilld. Já, ég hlakka til.
Svo er það Kommablótið eftir liðlega viku. Við erum að semja á fullu en að venju eru það Gummi Bjarna, Smári Geirs, ofannefndur Jón og ég sjálfur sem semjum þann annál og söngtexta. Meira um það síðar.
Gleðilegan þorra og gangið hægt... en örugglega um gleðinnar dyr!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýr meirihluti í Fjarðabyggð
7.6.2010 | 10:02
Hvers vegna? Í fjölmiðlum var það látið líta svo út að Sjálfstæðisflokkurinn hafi haft valið því hann var sigurvegari kosninganna. Í raun var það þannig að Framsóknarflokkurinn ákvað að hætta núverandi meirihlutasamstarfi og hoppa upp í hjá íhaldinu. Það er svo sem í lagi en mér finnst Framsókn verða að skýra þetta betur út fyrir okkur kjósendum.
Nú bíð ég spenntur eftir svörum frá Framóknarflokknum hvers vegna þessi ákvörðun var tekin. Já og líka hvers vegna Sjálfstæðisflokkurinn ákvað að taka boði Framsóknar í stað þess að neita og taka upp viðræður við Fjarðalistann.
Ágreiningur í kosningabaráttunni var töluverður á milli Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins og m.a. fór Guðmundur Þorgrímsson yfir það á fundi í Neskaupstað hvernig sjálfstæðismenn fóru frjálslega með staðreyndir. Eiður Ragnarssson rak lygi ofan í Jens Garðar í blaði Framsóknar og er enn að pönkast í þeim sem sjá má hér í athugasemdum: http://www.austurglugginn.is/index.php/Frettir/Frettir/Valdimar_fekk_flestar_utstrikanir_i_Fjardabyggd
Framsókn velur semsagt frekar að vinna með andstæðingum sem fara með fleipur í kosningabaráttu í stað þess að vinna áfram með samstarfsflokki sem fór fram með málefnalega kosningabaráttu og hefur verið góður samstarfsflokkur. Ég sem fyrrverandi samstarfsmaður í meirihluta hef allavega ekki fengið kvartanir frá fyrrverandi samstarfsflokki, Framsóknarflokknum í Fjarðabyggð.
Sjálfstæðisflokkur vill frekar vinna með flokki sem sakar þá um lygar og staðreyndafölsun.
"Þangað leitar klárinn sem hann er kvaldastur."
Ég bíð spenntur eftir útskýringum frá öllum flokkunum þremur á því hvernig stendur á því að nýr meirihluti var myndaður eins og raun ber vitni.
Svo væri gaman að vita hvers vegna niðurstaðan varð sú að auglýsa eftir bæjarstjóra. Ég hélt að báðir flokkar vildu leita að reyndum heimamanni. Ég spái því að eftir auglýsingaferlið verði ráðinn sjálfstæðismaður. Mjög líklega er um það samið á bakvið tjöldin að Sjálfstæðisflokkurinn ráði þessu.
Svo spyr ég eins og sumir hafa spurt. Hvar er meirihlutasamningurinn? Afhverju er hann ekki opinberaður strax?
Annars er ég bara hress og sef ágætlega út af þessu en hef þungar áhyggjur af því að Framsóknarflokkurinn í Fjarðabyggð þurrkist út í næstu kosningum. Eða nei... ég hef engar áhyggjur af því :-)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Allt hefur sinn tíma
28.5.2010 | 14:22
í gær sat ég síðasta bæjarstjórnarfund minn (í bili allavega:-)) Fyrir 20 árum sat ég þann fyrsta. Helmingur af minni ævi hefur farið í sveitarstjórnarmál og sé ég ekki eftir einni einustu mínútu. Fundurinn var enn sögulegri fyrir Smára Geirsson vin minn sem ég hef starfað með allan þennan tíma. Hann á 28 ára glæsilegan feril að baki. Við Smári fluttum svohljóðandi tillögu á fundinum í gær.
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkir að í tengslum við uppbyggingu snjóflóðavarnarmannvirkja ofan Urðarteigs og Hlíðargötu verði gert ráð fyrir minningarreit um snjóflóðin sem féllu 1974. Minningarreiturinn verði innan við þéttbýlið á þeim slóðum er Mánahúsið stóð áður. Bæjarstjórn felur umhverfissviði að gera tillögu að reitnum í samvinnu við umhverfishönnuði varnarvirkjanna.
Málþing var haldið í Egilsbúð sunnudaginn 16. maí. Það var byrjun á sýningunni "Flóðin" sem verður opin í Egilsbúð í sumar. Málþingið var mögnuð stund og sáust víða tár á hvarmi. Jón Hilmar Kárason í Egilsbúð er hvatamaður að sýningunni og hefur hann fengið félaga sinn Jón Knút Ásmundsson til að vinna í verkefninu með sér í upplýsingaöflun m.a. með viðtölum. Meðal þeirra sem voru með erindi á málþinginu voru séra Svavar Stefánsson er var sóknarprestur í Neskaupstað árin eftir snjóflóðin og Árni Þorsteinsson er bjargaðist eftir 20 tíma, innilokaður í rústum og snjó. Þá var Harpa Grímsdóttir frá Veðurstofunni með áhrifamiklar myndir af snjóflóðum og gott yfirlit yfir söguna og þróun byggðar.
Rósa Margrét Sigursteinsdóttir var ung kona er flóðin féllu og bjargaðist ásamt ungri dóttur sinni á undraverðan hátt. Hún lenti í seinna flóðinu er kom úr Miðstrandaskarði. Á meðal mannvirkja sem urðu fyrir síðara flóðinu var bifreiðaverkstæði, steypustöð og íbúðarhúsið Máni en það var ysta byggingin sem lenti í flóðinu. Í risi hússins var Rósa stödd og eins árs dóttir hennar, Sigrún Eva Karlsdóttir. Er flóðið skall á Mána rifnaði húsið af grunni og brotnaði í smátt, að undanskildu risinu sem barst um 80 metra með flóðinu. Í risinu höfðu Rósa og dóttir hennar verið sofandi er flóðið féll og lifðu þær flóðið af. Það var áhrifamikið að hlusta á frásögn Rósu og heyra um hennar líf eftir flóðin. Tillaga okkar Smára er í raun frá henni komin en hún færði þetta í tal á málþinginu.
Ég mun svo mælast til þess að hugmyndir um minningarreitin verði gerðar í samráði við þá er málið varðar mest.
12 fórust í snjóflóðunum. Blessuð sé minning þeirra er fórust, þeirra sem aldrei fundust og megi góður guð forða okkur frá því að svona nokkuð gerist aftur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Hvernig er staðan á austurvígstöðvunum?
25.5.2010 | 11:09
Ég mætti á 3 af 6 sameiginlegum fundum sem framboðin voru með í Fjarðabyggð. Almennt fundust mér framsögur og fyrirspurnir málefnalegar. Það var kominn smá hiti í mannskapinn í lokin, þó sérstaklega Jens Garðar vin minn sem fór mikinn á síðasta fundinum í Neskaupstað. Jens er eins og "Séð og heyrt" - "gerir lífið skemmtilegra" :-) Mér fannst þó mikil mistök... og umtöluð að Valdimar hafi ekki mætt á fundinn á Eskifirði. Kannski var hann löglega forfallaður.
Þegar maður er ekki í hringiðunni þá er erfitt að gera sér grein fyrir hvernig stemmningin er. Hvað haldið þið gott fólk?
Er Fjarðalistinn að fara að rústa þessu? Besti flokkurinn í Fjarðabyggð!
Er Jón Björn kannski að sópa til sín atkvæðum eins og honum tókst í prófkjörinu?
Hvað með hægri sveifluna sem greinilega varð fyrir 4 árum. Er Jens að meika það?
Endilega segið mér hvað þið eruð að hugsa og hvað þið heyrið.
Þetta er jú alltaf jafn spennandi... finnst mér.
Kær kveðja!
Gummi Stalín (II)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Í fréttum er þetta helst...
31.10.2009 | 11:35
...hérna í Valsmýrinni.
Við María liggjum saman í klessu í stofusófanum. Hún nartar í pizzu frá því í gærkvöldi og horfir á barnaefnið. Ég er með tölvuna í fanginu og hamra inn helstu fréttir af okkur.
Ekki hefur Svínaflensan lagt okkur en stelpurnar hafa verið kvefaðar og sá sem þetta ritar hefur einnig steinlegið í kvefpest. Guðrún stendur þetta allt af sér enda hraustari en við til samans. Stebba Þorleifs genin eru ekkert kex!
Eyrún er að hanna kjól með vinkonum sínum sem þær ætla að setja í samkeppni í Atóm. þemað er "endurvinnsla" og verður þetta forvitnilegur kjóll svo ekki sé meira sagt. Eyrún er líka að fara að syngja með bekkjarfélögum sínum í söngleiknum Abbababb sem settur verður upp í Egilsbúð af 9. bekk Nesskóla og foreldrum. Ætli ég verði ekki í hlutverki doktorsins sem bassaleikari í bandinu. Það er áskorun í tvennum skilningi: Dr Gunni er skemmtilegur bassaleikari og ég... er ekki bassaleikari!!!!
María keypti sér rafmagnsgítar um daginn og er mjög áhugasöm um að gerast rokkari. Hún er að læra á píanó hjá Agli í tónskólanum og finnst það frábært. Ég lofaði að leiðbeina henni á gítarinn og mun gera það af veikum mætti en miklum áhuga. Hún er í 3. bekk og gengur vel í náminu. María Bóel er orkubolti sem helst vil hafa nóg að gera frá morgni til kvölds.
Guðrún er að kenna 1. bekk í Nesskóla þar sem margir snillingar eru að hefja skólagöngu sína. Þar á meðal eru tvíburar Villu og Svanbergs, demantarnir okkar Ólafía Ósk og Elmar Örn. Þau hafa frá því þau byrjuðu að tala kallað Gunnu "Diddu" eins og Villa gerði og gerir enn. Nú þurfa þau að kalla hana Gunnu eða Guðrúnu í skólanum og gengur það vel. Þau eru frábær og ekki laust við að Gunna sé stolt af því að fá að leiðbeina þeim frændsystkinum sínum að stíga fyrstu skrefin í náminu. Guðrún hefur einnig umsjón með uppsetningu 9. bekkjar á Abbababb þannig að það verður nóg að gera á næstunni.
Ég er að sjálfsögðu að stjórna og stýra Gámaþjónustu Austurlands sem telur um 30 starfsmenn sem allir nema tveir vinna í álverinu eða fyrir álverið. Þetta hefur verið mikið uppbyggingar- og frumkvöðlastarf þar sem Alcoa krefst endurvinnslu eða endurnýtingu á öllu sem fellur til. Einnig erum við í ýmsum verkefnum s.s. iðnaðarþrifum, útflutningi, sérverkefnum og ráðgjöf. Ekkert er okkur óðviðkomandi. Samstarfsfólkið hjá Gámaþjónustunni er frábært og án þeirra væri ég löngu hættur. Starf mitt í bæjarstjórninni hefur minnkað eftir að ég hætti í bæjarráði. Það var kærkomið. Nú styttist í bæjarstjórnarkosningar sem verða í vor og hef ég tekið ákvörðun um að gefa ekki kost á mér. Það er ekkert leyndarmál. Ég er búinn að vera í þessu í 20 ár, þ.a. 15 ár sem aðalfulltrúi í vor. Mér finnst ég vera búinn að standa vaktina nógu lengi. Nú mega aðrir eyða frítíma sínum í þetta vanþakkláta starf. Samt vil ég taka fram að mér hefur fundist þetta ótrúlega skemmtilegur tími og væri ég löngu hættur ef ég hefði ekki haft gaman af og talið mig vera að gera samfélagi mínu eitthvert gagn. Ekki var ég í þessu vegna launanna það er ljóst! Þau hafa þó skánað síðan ég byrjaði. Ég lofa því ekki að hætta í pólitík... til þess er ég of ungur (40 í febrúar) og ég hef ennþá brennandi áhuga á samfélagsmálum og vil heimabyggðinni allt hið besta.
Ég er og verð landsbyggðarmaður og það er mín eina sanna vitrun í pólitík.
Mér gengur illa að finna mig innan flokkakerfisins. Ég hef stutt Samfylkinguna og var einhvers staðar á listanum fyrir síðustu alþingiskosningar. En svei mér þá... ég efast um að ég myndi kjósa Samfylkinguna í dag. Allavega líst mér ekki á skattaáform þeirra sem verða til þess eins að lengja í kreppunni og stöðva alla uppbyggingu og þróun. Það getur ekki verið skynsamlegt að slátra eða misþyrma mjólkurkúnni eða éta meginhlutann af útsæðinu
Við Gunna erum að fara að skemmta okkur í kvöld. Við erum að fara á Rokkveisluna í Egilsbúð. Um er að ræða upprifjun á 20 ára sögu Rokkveislunnar. Það verður gaman af því að vera í salnum því í flestum þessara sýninga höfum við Gunna tekið þátt. Hún með dansana og ég í söng. Svo rákum Egilsbúð í 9 ár þannig að þetta er okkar "baby" í mörgum skilningi. Nú erum við í fríi og ætlum okkur að njóta. Óska ég flytjendum góðs gengis.
Ekki fleira í bili.
Njótum dagsins, morgundagurinn er ekki sjálfgefinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Sveitarfélagið Austurland?
9.10.2009 | 09:22
Þegar ég var ungur (yngri) dreymdi mig um 3. stjórnsýslustigið. Ég var svo einfaldur að halda að kannski gæfi Alþingi eftir völd til héraðsstjórna og Austurland yrði eitt fylki sem réði sínum málum sjálft og hefði sjálfstæða tekjustofna miðað við það sem við öflum. Austurland væri góssenland ef þetta hefði orðið að veruleika.
Ég held að þetta sé ennþá hægt. Við förum bara aðra leið að settu marki. Mínar hugmyndir eru:
- Sameina sveitarfélög á Austurlandi í eitt.
- Kjósa á 4. ára fresti í stjórn Austurlands og kjósa einnig í stjórnir þjónustueininga sem væru nokkrar á meðan samgöngur eru ekki betri. t.d. ein stjórn í Neskaupstað, önnur fyrir Eskifjörð, Reyðarfjörð og Fáskrúðsfjörð og svo framvegis svo ég taki dæmi úr mínu sveitarfélagi. Þegar samgöngur batna fækkaði þessum stjórnum. Með þessu færum við völdin aftur nær íbúunum. Stjórn Austurlands færi með stærri málin og yfirstjórn.
- Semja við ríkið um niðurfellingu skulda hins nýja sveitarfélags. Bara dropi í hafið miðað við allt ruglið sem verið er að fella niður í dag.
- Semja við ríkið um að við tökum yfir rekstur allra opinberra stofnanna á Austurlandi, heilbrigðisþjónustu, vegagerð og fl.
- Gera bindandi samgönguáætlun við ríkið sem fæli í sér stórfelldar vegabætur og jarðgöng til Neskaupstaðar, Seyðisfjarðar, Mjóafjarðar, Vopnafjarðar..... Mætti vera 20 ára áætlun, helst styttri.
- Sameina stoðstofnanir sveitarfélaga að einhverju marki undir stjórn Austurlands og nýta betur samvinnu í þágu alls Austurlands. T.d. Menningarráð Austurlands og Markaðsskrifstofu Austurlands, Þróunarfélag og ..... af mörgu er að taka.
Eflaust er hægt að hafa þetta mun lengra og ítarlegra en ég nenni ekki að skrifa meira í bili.
Ef þessar forsendur væru til staðar væri ég til í að sameina allt Austurland í eitt sveitarfélag.
Samþykkt SSA var svohljóðandi:
43. aðalfundur SSA, haldinn á Seyðisfirði 25. - 26. september 2009, samþykkir að fela stjórn SSA að skipa starfshóp sem hafi það meginverkefni að fjalla um hugsanlega sameiningu sveitarfélaganna á starfssvæði SSA í eitt sveitarfélag.
Hópnum er falið eftirfarandi:
- að gera tillögur að stjórnkerfi nýs sameinaðs sveitarfélags
- að leita eftir samvinnu við ráðuneyti samgöngu- og sveitarstjórnarmála um mögulega sameiningu
- að kanna vilja ríkisvaldsins til sameiginlegrar stefnumörkunar um opinberar framkvæmdir og verkaskiptingu slíks sveitarfélags og ríkisvaldsins
- að fjalla um þau áhrif sem tilkoma hins nýja sveitarfélags hefði í för með sér fyrir austfirskt samfélag með sérstakri áherslu á þau tækifæri sem sköpuðust
Hér er um að ræða ótvírætt tímamótaverkefni, sem ekki á sér hliðstæðu á Íslandi. Því er mikilvægt að allir sem að því koma standi að því af metnaði og með vönduðum hætti.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Kannski maður skokki þetta næst?
15.7.2009 | 10:40
Þetta er örugglega skemmtilegt hlaup. Ég er ekki alveg tilbúinn svona viku eftir maraþon en kannski seinna.
Pjetur St. Arason vinur minn er búinn að undirbúa sig undir þetta hlaup. Ég óska Pjetri góðs gengis og skemmtunar. Koma svo Pjetur!
Ég og Jói Tryggva nokkuð ferskir eftir maraþonið á landsmóti UMFÍ um síðustu helgi.
Margir hlaupa Laugaveginn um helgina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
ÓÓÓsammála!
13.7.2009 | 20:49
Hún hefur ekki þvælst um bæinn nema hún hafi verið með óráði. Þetta var þræl vel merkt og starfsfólk við öll gatnamót. Hún hefur einfaldlega ofgert sér. Það hélt ég að fólk með reynslu lenti ekki í. Ég er reynslulaus en vissi þó að ég þyrfti að drekka mikið á hverri vatnsstöð og voru þær nógu margar að mínu mati. Ég skemmti mér konunglega í þessu hlaupi og það var ekki síst að þakka frábæru starfsfólki sem hvatti okkur óspart.
Þó þetta hafi klúðrast hjá konunni finnst mér ósanngjarnt hjá henni að kenna skipulagi um eigin mistök.
Ósátt við skipulag hlaupsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Frábært hlaup! Ég komst óstuddur í mark:-)
13.7.2009 | 20:34
Ég hljóp þetta hlaup og var bara að koma heim til Neskaupstaðar.
Ég er sammála þessari gagnrýni. Til að fá verðlaun verða menn að komast hjálparlaust í mark, það segir sig sjálft.
Mér fannst hlaupið vel skipulagt, starfsfólkið á drykkjarstöðvunum var skemmtilegt og hjálplegt og öll umgjörð var til sóma að mínu mati. Reyndar var óheppilegt að hafa þessa löngu brekku en það var nauðsyn til að geta endað á leikvanginum. Ég legg til að næst þegar maraþon verður á Akureyri, sem ég vona að verði á næsta ári, verði leiðinni breytt eilítið svo ekki þurfi að enda á þessari brekku. Veðrið var náttúrulega geggjað, í raun var allt of mikil sól og fullheitt. Þess vegna voru margir frekar slæptir í lokin og ekki hjálpaði brekkan til. Mér fannst þó verst að vera með vindinn í fangið síðustu 16 kílómetrana frá Hrafnagili út í bæ. Þetta kalla Akureyringar hafgolu:-) en þetta var á köflum nokkuð strangur vindur.
Þetta var annað maraþon mitt á ævinni og ég bætti mig um 18 mínútur frá því í fyrra og er sáttur við tímann sem Garmin GPS úrið mitt sýndi en ekki alveg sáttur við tímann sem hlaupshaldarar settu upp. Ég sá villur í úrslitunum á landsmótssíðunni en ég vona að það verði leiðrétt þegar úrslitin verða birt á hlaup.is.
Ég vil þakka fyrir skemmtilegt hlaup og vonast til að Akureyringar geri Akureyrarmaraþon að árvissum viðburði.
Deilt um úrslit í maraþoni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)