Allt hefur sinn tíma

í gær sat ég síðasta bæjarstjórnarfund minn (í bili allavega:-)) Fyrir 20 árum sat ég þann fyrsta. Helmingur af minni ævi hefur farið í sveitarstjórnarmál og sé ég ekki eftir einni einustu mínútu. Fundurinn var enn sögulegri fyrir Smára Geirsson vin minn sem ég hef starfað með allan þennan tíma. Hann á 28 ára glæsilegan feril að baki. Við Smári fluttum svohljóðandi tillögu á fundinum í gær.

Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkir að í tengslum við uppbyggingu snjóflóðavarnarmannvirkja ofan Urðarteigs og Hlíðargötu verði gert ráð fyrir minningarreit um snjóflóðin sem féllu 1974. Minningarreiturinn verði innan við þéttbýlið á þeim slóðum er Mánahúsið stóð áður. Bæjarstjórn felur umhverfissviði að gera tillögu að reitnum í samvinnu við umhverfishönnuði varnarvirkjanna. 

 

Málþing var haldið í Egilsbúð sunnudaginn 16. maí. Það var byrjun á sýningunni "Flóðin" sem verður opin í Egilsbúð í sumar. Málþingið var mögnuð stund og sáust víða tár á hvarmi. Jón Hilmar Kárason í Egilsbúð er hvatamaður að sýningunni og hefur hann fengið félaga sinn Jón Knút Ásmundsson til að vinna í verkefninu með sér í upplýsingaöflun m.a. með viðtölum. Meðal þeirra sem voru með erindi á málþinginu voru séra Svavar Stefánsson  er var sóknarprestur í Neskaupstað árin eftir snjóflóðin og Árni Þorsteinsson er bjargaðist eftir 20 tíma, innilokaður í rústum og snjó. Þá var Harpa Grímsdóttir frá Veðurstofunni með áhrifamiklar myndir af snjóflóðum og gott yfirlit yfir söguna og þróun byggðar.

Rósa Margrét Sigursteinsdóttir var ung kona er flóðin féllu og bjargaðist ásamt ungri dóttur sinni á undraverðan hátt. Hún lenti í seinna flóðinu er kom úr Miðstrandaskarði. Á meðal mannvirkja sem urðu fyrir síðara flóðinu var bifreiðaverkstæði, steypustöð og íbúðarhúsið Máni en það var ysta byggingin sem lenti í flóðinu. Í risi hússins var Rósa stödd og eins árs dóttir hennar, Sigrún Eva Karlsdóttir. Er flóðið skall á Mána rifnaði húsið af grunni og brotnaði í smátt, að undanskildu risinu sem barst um 80 metra með flóðinu. Í risinu höfðu Rósa og dóttir hennar verið sofandi er flóðið féll og  lifðu þær flóðið af. Það var áhrifamikið að hlusta á frásögn Rósu og heyra um hennar líf eftir flóðin. Tillaga okkar Smára er í raun frá henni komin en hún færði þetta í tal á málþinginu.

Ég mun svo mælast til þess að hugmyndir um minningarreitin verði gerðar í samráði við þá er málið varðar mest.

12 fórust í snjóflóðunum. Blessuð sé minning þeirra er fórust, þeirra sem aldrei fundust og megi góður guð forða okkur frá því að svona nokkuð gerist aftur.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eiður Ragnarsson

Flott tillaga og þetta á klárlega að græja...

Eiður Ragnarsson, 29.5.2010 kl. 08:36

2 Smámynd: Guðmundur Rafnkell Gíslason

Þú fylgir þessu eftir fyrir mig vinur. Ertu inni?

Guðmundur Rafnkell Gíslason, 29.5.2010 kl. 11:12

3 Smámynd: Gísli Gíslason

Flottur pistill og tillaga hjá ykkur. 

Það voru pabbi og Guðmundur Magnússon sem komu að Rósu í risinu á Mána sem hafði flotið niðureftir ofaná flóðinu.  Þeir voru eitthvað að vinna niður í sjóskúr á Strandgötunni og Jóhann bróðir var með þeim þegar flóðið kom.  Þeir hlupu inn götu og Jóhann sagði að þeir hefðu mætt Alfreð að koma úr sjónum/fjörunni sem hafði sagt þeim að það væri örugglega fólk í flóðinu innar.  Pabbi og Gummi skipuðu þá Jóhanni að fara heim.  Þeir komu að Rósu og stelpan var í rúmi, held í öðru herbergi.  Ég var úti á tröppum heima og man að ég var alveg undrandi hvað pabbi og Gummi, þessir "gömlu" karlar hlupu hratt inn Strandgötuna.  Man að pabbi talaði um að rúm litlu stelpunnar hefði verið mikið laskað en allt í lagi með stelpuna og Rósa hefði verið nánast í splitt.

Gísli Gylfason á afmæli 21. des og við bræður fórum í afmæli til hans annaðhvort milli jóla og nýárs eða í byrjun jan 1975, en Rósa hélt það afmæli enda bjuggu þau þá innfrá hjá Gylfa.

Gísli Gíslason, 3.6.2010 kl. 10:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband