Saklaus hrekkur

Jæja, það er allt búið að vera vitlaust frá því að ég setti inn færsluna hér að neðan um uppsögn mína úr Súellen. Allt sem kemur fram í færslunni er rétt. Þetta var hins vegar hrekkur sem félagar mínir gerðu mér en engin bjóst við því að þetta færi svona langt.

Ég trúði þessu ekki, svo trúði ég þessu, svo trúði ég þessu ekki og... þið vitið.

Svo skellti ég þessu inn á bloggsíðu mína til að knýja fram sannleikann sem kom fram. Aðallega til gamans og til að hrella félaga mína.

Þetta var alvöru hrekkur og ég var TEKINN!!!!

Þetta er geymt en ekki gleymt og bið ég alla afsökunar ef ég hef með þessari færslu valdið einhverjum hugarangri.

Sáttafundur er boðaður á næstunni og þá föllumst við félagarnir í faðma. Alveg eins og í Dallas hér í dennInLove

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já sææææææææll...og ég sem ætlaði að sækja um....aaaandskotans vesen

kv

Einzi frá Gerðistekk

Einar Ágúst (IP-tala skráð) 11.12.2007 kl. 18:10

2 identicon

Hehehehehe.....það er ekki hægt að ljúga upp á þá félagana þína í Súellen,við þekkjum þetta báðir og oft hef ég fengið marga hrekkina frá ykkur þegar ég var að róta með ykkur í denn.Þið eruð skemmtilega snarruglaðir alli saman.Ekkert er ykkur heilagt í þessum málum,þ.e.a.s.þegar að stríðnin og djókið er annars vegar,sannkallaður Súellen húmor.Og ég sem var farin að halda að þið væru búnir að hlaupa af ykkur hornin,en svo er greinilega ekki,hehehehe.....Þið eru gleðigjafar,hrekkir og annað,lifið fyrir það.Bara gaman að því Gummi,hehehe....

P.s.Ráðið þið bara Einza á Gerðistekk bara ekki sem kassagítarleika?

Hertoginn á Bjarti NK (IP-tala skráð) 11.12.2007 kl. 18:55

3 Smámynd: Sóley Valdimarsdóttir

Iss þeir hafa bara ekki þorað þegar bloggheimurinn stóð upp og bretti upp ermarnar hehehehehe

Sóley Valdimarsdóttir, 11.12.2007 kl. 20:21

4 Smámynd: Úrsúla Manda

Það hlaut að vera! Helv... góður hrekkur verður að segjast

Úrsúla Manda , 11.12.2007 kl. 21:52

5 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

http://erla1001.blog.is/blog/erla1001/entry/388660/

skoðaðu þetta

Einar Bragi Bragason., 12.12.2007 kl. 00:33

6 Smámynd: Guðmundur Rafnkell Gíslason

Já sæl, Þetta var allt með ólíkindum en þessir drengir eru eins og Séð og heyrt... gera lífið skemmtilegra!

Til hamingju með plötuna þína Einsi boy. Tek alltaf ofan hattinn (og gleraugun) fyrir þeim sem þora að gera persónulega hluti, ekki bara "ég elska þig" lög. Á reyndar eftir að kaupa gripinn en lofa að gera það í dag. það sem ég hef heyrt á spaceinu þínu er flott.

Einar Ágúst var nú reyndar í Súellen nokkur böll, eru allir búnir að gleyma því????

Guðmundur Rafnkell Gíslason, 12.12.2007 kl. 09:40

7 Smámynd: Hulda Elma Guðmundsdóttir

Svakalega er þessi hrekkur "Steinars-legur" Ert þú kominn í stað J...?

Hulda Elma Guðmundsdóttir, 12.12.2007 kl. 12:21

8 Smámynd: Guðmundur Rafnkell Gíslason

Steinar er samt saklaus af þessu!

Ég fatta ekki J...?

Guðmundur Rafnkell Gíslason, 12.12.2007 kl. 16:10

9 Smámynd: Hulda Elma Guðmundsdóttir

Segi þér það þegar við sjáumst næst.

Hulda Elma Guðmundsdóttir, 13.12.2007 kl. 12:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband