Nafnleysi á Netinu

Þetta er náttúrulega ábyrgðarlaust að gera svona. Ég er ekki með Myspace síðu, ég hélt að þær væru bara fyrir þá sem vilja meika það í útlöndum. Hvernig er það er ekki beðið um persónuupplýsingar þegar svona síða er stofnuð?

Ég er sammála Jóni, hann hlýtur að kanna málið og láta loka síðunni.

Annars er þetta nafnleysi á Netinu alvarlegt mál og margir láta allskyns óhróður um fólk flakka án þess að þora að standa fyrir því í eigin nafni.

Mér var sagt á dögunum að sumir setji inn athugasemdir hjá sér sjálfum undir hinum og þessum nöfnum til að stýra umræðunni. Ég hafði nú ekki hugmyndaflug í svoleiðis bull. Svei, bara!


mbl.is „Síðan hefur ekkert með mig að gera"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

sammála

nafnlaus (IP-tala skráð) 19.12.2007 kl. 14:06

2 identicon

Nafnleysið er samt líka einmitt einn af kostum netsins.

Ef einhver vill dreifa óhróðri þá gæti viðkomandi nú alveg eins hengt upp plaköt um allan bæ eða eitthvað álíka.

Vandamálið er held ég frekar það að fólk tekur upplýsingar á netinu oft án fyrirvara.  Fólk veit held ég að upplýsingar á netinu gætur verið rangar (eða "falsaðar") en það gerist það sjaldan að það pælir ekki í því.  Annað dæmi er tölvupóstur.  T.d. gæti ég sent þér tölvupóst með nafni og netfangi forsætisráðherra og þú mundir sennilegast aldrei fatta að það væri ekki frá honum komið (þó það sé auðvitað hægt að sjá), og þetta er meira að segja bara nokkuð auðvelt og á margra færi.  Samt tekur fólk tölvupóst mjög trúanlegan og ég veit ekki um marga sem efast um að póstarnir sem það fær séu frá réttum aðila.  Mörg fyrirtæki ganga jafnvel svo langt að taka email jafngilt sem undirskrift viðkomandi, það finnst mér mjög vafasamt.

Auðvitað er flest á netinu "rétt" og gert í góðri trú, það þýðir samt ekki að fólk eigi ekki að velta fyrir sér að upplýsingar gætu verið frá öðrum en þær virðast eða verið rangar á annan hátt (og þetta gildir um heimasíður og email og fleira).  Ég er samt ósammála því að það sé eitthvað vandamál varðandi netið sem slíkt, það er frekra vandamál notendanna sem trúa á það í blindni. 

Það eru til margar leiðir til að verifya að upplýsingar á netinu séu frá réttum aðila, dulkóðun heimasíða (https) og dulkóðuð email eru dæmi um þetta.  Með nútíma email tækni er bæði hægt að dulkóða emailin, svo enginn milliliður geti lesið þau, og svo er hægt að staðfesta að uppruni þeirra sé réttur.  Samt notar þetta mjög fáir, og það er vandamál notenda ekki netsins.

Meira: http://en.wikipedia.org/wiki/Pretty_Good_Privacy

Kári Hreinsson (IP-tala skráð) 19.12.2007 kl. 15:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband