Færsluflokkur: Tónlist
Kastljós og Hveragerði
22.8.2007 | 11:05
Góðan dag kæru lesendur og vinir!
Upptaka í Kastljósi gekk vel og lagið verður sýnt á mánudag eða þriðjudag í næstu viku. Hljóðfæraleikarar sem spiluðu með mér á plötunni voru með mér og stóðu sig vel, enda snillingar! Nú eru lögin mín mikið spiluð á Rás 2 þar sem "Íslensk tónlist" er plata vikunnar á þeim bæ. Ég fæ víðast góð viðbrögð og er þakklátur fyrir það. Ég endurtek að ef ykkur langar í disk þá sendið mér línu á bgbros@simnet.is og ég sendi disk um hæl. Mín er ánægjan.
Tónleikar verða í Hveragerði á Blómstrandi dögum fimmtudagskvöld kl. 22:00. Þar munum við Halli Reynis flytja lög af plötu minni og Halli mun einnig spila sín þekktustu lög. Mikið hlakka ég til að prófa að flytja lögin mín á þennan hátt á rólegum tónleikum þar sem ég get sagt sögurnar á bak við lögin.
Kær kveðja!
Guðmundur R
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sjálfstæð útgáfa á tónlist. Fyrsti hluti
23.7.2007 | 14:07
Diskurinn minn kom til landsins fyrir viku en erfiðlega gengur að fá hann austur. Mér líður eins og föður sem fær ekki að sjá nýfætt barnið sitt. Halli Reynis snillingur og trúbador er þessa stundina að sækja hann í vöruhúsið og þá nálgast gleðistund! Ég ætla svo að bregða mér til Reykjavíkur á miðvikudag og kynna diskinn fyrir fjölmiðlafólki og freista þess að fá hann spilaðan í útvarpi. Það er jú forsenda þess að hann seljist og fólk viti af honum. Ég gef þennan disk út sjálfur og býst við að dreifa sjálfur. Það er ekki um marga kosti að ræða í þessu sambandi. Stærsta útgáfufyrirtæki landsins sem ræður 65-75% af markaðnum, samkvæmt þeirra heimasíðu, er hætt að dreifa fyrir sjálfstæða útgefendur og er það miður. Reyndar var það svo að ég bauð þeim að heyra plötuna mína þegar hún var nánast tilbúin. En svarið var kurteisilega orðað "nei takk, erum búnir að skipuleggja alla útgáfu þetta árið". Þetta var í apríl. Þeir eru vel skipulagðir fram í tímann, það verður ekki tekið af þeim! Samt skrýtið að vilja ekki hlusta á nýtt efni. Þegar ég var að stíga mín fyrstu skref fyrir 20 árum með Súellen þá voru Steinar Berg og Pétur Kristjáns alltaf til í að hlusta, enda opnir fyrir nýjungum. Er það ekki annars forsenda þróunar?
Fyrir ykkur hin sem ekki eruð búin að loka á nýja tónlist bendi ég á spilarann hér til hliðar. 2 splunkuný lög, njótið!
Kær kveðja,
Guðmundur R
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)